Almennar fréttir

BLAKMÓT LAUGARDAG 29. DESEMBER

Við ætlum að hittast hress og kát á milli jóla og nýárs því þá heldur Blakdeild KA blakmót þ.e. laugardaginn 29.desember n.k.   Mótið verður ekki með hefðbundnu sniði heldur paramót.

Áramótablak í Mosó 2010

Hið árlega Áramótablak í Mosó verður að venju haldið á gamlársdagsmorgun frá
kl 09:0012:00 í íþróttamiðsstöðinni að Varmá.

Áramót í Mosó

Hið árlega Áramótablak í Mosó verður að venju haldið á gamlársdagsmorgun frá kl 09:0012:00 í íþróttamiðsstöðinni að Varmá.

Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli 19. og 20. september.

Við byrjum blaktímabilið af krafti og bjóðum upp á okkar árlegu æfingabúðir.

Áramótið 2008

Áramótið 2008 verður haldið að Varmá í Mosfellsbæ að venju.

Mótið er einstaklingsmót og i lok móts verður krýndur Blakkóngur og Blakdrottning ársins.

KMK óska eftir samstarfi

KMK (Konur með konum) óskar eftir samstarfi við fámennt blaklið. Við erum opnar fyrir ýmsum útfærslum svo sem eins og að nýta æfingatíma beggja liða.

Gisting á Seyðisfirði og Egilsstöðum

Varðandi gistingu á Seyðisfirði og Egilsstöðum á Öldunagamótinu í blaki 30 apríl 2 maí 2009 þá má hafa samband við eftirfarandi aðila.

Seyðisfjörður.   Vilborg Borgþórsdóttir gvilborg@sbwcargo.is gsm. 864 6126 og Birna Guðmundsdóttir  thelmaros@simnet.is. gsm. 8685373

Egilsstaðir. Málfríður Björnsdóttir kmb81@simnet.is  gsm. 8697218

ÍK óskar eftir vönum blakkonum

ÍK (Íþróttafélag kvenna) óskar eftir vönum blakkonum í góðan liðshóp síungra kvenna (30+).

Öldungakonur Þróttar Rvk. óska eftir...

Öldungakonur Þróttar Rvk. óska eftir fleiri vönum og hressum blakliðskonum í vetur.

Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli 20. og 21. sept.

Hinar geysivinsælu æfingabúðir Dímonar verða á Hvolsvelli helgina 20. og 21. september. Þá stendur blakdeild Dímonar í þriðja sinn fyrir opnum æfingabúðum fyrir blakara í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Blakdeildin hefur fengið aftur til liðs við sig hina landsþekktu blakara þau Emil Gunnarsson og Laufeyju Björk Sigmundsdóttur  til þess að skipuleggja æfingabúðirnar og stjórna æfingum alla helgina. 

Nýtt útlit

blak.is hefur fengið nýtt útlit. Eins og sjá þá hefur útlit blak.is vefsins verið breytt en öll virkni er eftir sem áður sú sama.

33. Öldungamót BLÍ verður á Ísafirði og nágrenni 1. maí - 3. maí 2008.

Við viljum benda þeim sem vantar upplýsingar um gistimöguleika á svæðinu að hægt er að hafa samband við Sigrúnu á netfangið kgjss@simnet.is

Stefnt er á að opna heimasíðu mótsins um miðjan nóvember.


Blakfélagið Skellur
Öldunganefnd

KMK vantar þjálfara

Okkur stelpunum í KMK vantar nauðsynlega þjálfara til að pína okkur aðeins áram í vetur. Við erum á mánudagskvöldum milli 19 og 21 í íþróttasal Korpuskóla, Grafarvogi.

Brosmót Aftureldingar 2007 fellt niður

Brosmót Aftureldingar sem vera átti 20. janúar 2007 hefur verið fellt niður.

Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli

Helgina 23. og 24. september stendur blakdeild Dímonar fyrir opnum æfingabúðum fyrir blakara í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli.

Strandblak á Írskum dögum

Auglýsing um strandblakmót sem er hluti af dagskrá Írskra daga á Akranesi. Mótið verður haldið á Langasandi laugardaginn 9. júlí kl. 16. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokki.

Ný póstföng

Tvö ný póstföng hafa verið tekin í notkun á blak.is, blak@blak.is og oldungur@blak.is.

30. Öldungamót BLÍ

30. Öldungamót BLÍ verður haldið á Akureyri 21. til 23. apríl 2005

KB Bankamót Snæfells - Skráning hafin

Vinsamlegast tilkynnið þátttöku eigi síðar en miðvikud 3. nóvember
á blak.is

Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli

Helgina 13. og 14. nóvember stendur blakdeild Dímonar fyrir opnum æfingabúðum fyrir blakara í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Blakdeildin hefur fengið til liðs við sig þjálfarana Jón Ólaf Valdimarsson og Subaru Takenaka frá Japan til þess að skipuleggja æfingabúðirnar og stjórna æfingum alla helgina.

Útiblakmót í Hollandi í júní (Volleyball)

Meira um Hollandsferð

Nú er að duga eða drepast! 

Það eru komnir 11 Hollandsfarar og nú vantar bara 1-2 í viðbót til að ná saman tveimur alíslenskum liðum.

Reglugerð fyrir öldungamót BLÍ - uppfært

Breyting á 2. grein - við bættist textinn:

Heimilt er að færa aldurstakmark í ljúflingadeildum niður í 45 ár fyrir 2 leikmenn í liði.

Spilum blak í Hollandi!!!

Stelpur úr Fylki óska eftir karlspilurum til að fara með sér á blakmót í Hollandi 28. - 31. maí þar sem spilað er í blönduðum liðum.

Blakmót í Hollandi

The 26th International Hajraa Outdoor Tournament will be held on June 19 & 20 2004 on the grounds of the University of Technology of Eindhoven in the Netherlands.

The Hajraa Outdoor Tournament has grown to be the biggest grass-court tournament in Europe, with over 400 teams playing on more than a 100 grass-courts.

Blakmót í Finnlandi

Boð á öldungablakmót í Finnlandi 11.-13.6.2004.

Evrópsk fyrirtækjakeppni í knattspyrnu, tennis og blaki

Tilkynning frá hollenska fyrirtækjaíþróttasambandinu
 
Evrópsk fyrirtækjakeppni í knattspyrnu, tennis og blaki.
Í Eindhoven, Hollandi 29.-30. maí 2004

Krakkablak.bli.is

Blakarinn styrkir krakkablak á Íslandi með því að veita BLÍ aðgang að blak.is kerfinu.

Búnaðarbankamót Snæfells

Næsta mót að bresta á!

Haustmót KA

Skráning á Haustmót KA er hafin!

VÍS styrkir blak.is

VÍS hefur enn einu sinni sýnt velvilja sinn í verki og styrkir blak.is.

Fyrstu mótin komin á skrá

Búnaðarbankamót Snæfells og Haustmót KA - takið strax frá þessa daga!

Æfingar að byrja

Nú eru skólarnir byrjaðir og flestir búnir með sumarfríin sín og þá byrjar náttúrulega blakið aftur.

Jump 03 í Sviss

Lið frá Fylki og Þrótti R tóku þátt í alþjóðlegu blakmóti í Sviss.

Bilun í umræðukerfinu

Umræðukerfið er aftur komið í lag.

Þjálfaranámskeið í Krakkablaki “KidsVolley”

Stutt námskeið – undirstöðuatriði í krakkablaki á 4 tímum

Nýr hýsingaraðili

blak.is hefur gert samning við Þekkingu-Tristan um hýsingu

Mikil gróska í mótahaldi

Mörg mót framundan

Fyrirspurn frá Færeyjum

Ýmsar fyrirspurnir berast til blak.is og hér er ein frá Færeyjum!

Blakmót á Hvolsvelli

Hið árlega Dímonarmót fyrir öldunga í blaki verður í íþróttamiðstöðinni Hvolsvelli laugardaginn 25.janúar 2003. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokkum.

Opið hús hjá Aftureldingu

Afturelding verður með opið hús fyrir alla sem vilja spila blak á fimmtidögum í vetur. Þetta er í æfingatíma karla kl. 21.30.

Áramót 2002

Áramót 2002 var haldið á gamlársdag að Varmá í Mosfellsbæ og var spilað um titilinn blakmaður ársins karla og kvenna. 

Breyting á mótstíma Áramóts

Mótið færist fram og mun hefjast kl. 10:00.

Kjörísmót Hamars

Blakarar, það verður haldið 5. apríl ... takið daginn frá !!??

Áramót 2002

Áramót 2002 verður haldið á gamlársdag að Varmá í Mosfellsbæ og verður spilað um titilinn blakmaður ársins karla og kvenna. 

Leikjaplan Haustmóts KA

Leikjaplan fyrir Haustmót KA verður tilbúið um kl 19:00 14. nóvember hér á blak.is.

Rúta á Stykkishólm

Rúta til Stykkishólms að morgni keppnisdags

Búnaðarbankamót Snæfells - Mótið nálgast - spennan eykst - nú verður gaman !

Allir fá frítt í sund í boði Snæfells - hafið sundfötin með - heitu pottarnir eru opnir

Þátttökugjald kr. 7.500 á lið greiðist á mótsstað

Skráning opin á Haustmót KA

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Haustmót KA sem fer fram dagana 15. - 16. nóvember. Skráningu liða þarf að vera lokið í síðasta lagi miðvikudaginn 13. nóvember. Mótsgjald er kr. 9.000 og greiðist fyrir 13 nóv. Vinsamlegast leggið inn á reiking í Landsbankanum 164 hb 26 R2288 kt. 670890-2289.

Að þessu sinni verður spilað á föstudagskvöldi frá 20:30 - 23:30 og á laugardag frá 08:30 eins lengi og þarf.  Eftir það verður pizza hlaðborð og tilheyrandi á veitingastaðnum Við Pollinn, með sérstökum tilboðum mat og drykk. Síðan verður auðvitað dansað á eftir

Skráning til þriðjudagskvölds 05.nov í Búnaðarbankamótið

Frestur til skráningar er til þriðjudagskvölds - á Blak.is í tölvupósti kjartanp@binet.is  eða síma 8604109

Skráning hafin á yngriflokkamót BLÍ

Fyrra Íslandsmót yngriflokka BLÍ verður haldið á Neskaupstað 9.-10. nóvember.   Skráning er hafin á blak.is og er opin til 7. nóvember.

BLÍ á blak.is

Blaksamband Íslands, BLÍ, hefur ákveðið að skrá öll sín mót í mótakerfi blak.is

Vertíðin að byrja

Nú fer senn að líða að því að æfingar byrji þetta haustið.  Það þýðir líka að styttast fer í mótin ... og það fyrsta þegar komið á blað, þ.e.  Haustmót KA.

Strandblak - sumarblak

Strandblak í Nauthólsvík og sumar-/skógarblak í Kjarnaskógi

De Nordiske Hospitalslege

De Nordiske Hospitalslege (Norrænu sjúkrahússleikarnir) verða í Reykjavík 13. - 16. júní 2002.

Nýtt útlit á fréttum á blak.is

Útliti fréttanna hefur verið gjörbreytt, og þær eru miklu læsilegri og þægilegri í notkun núna.

VÍS styrkir blak.is

VÍS hefur komið til aðstoðar við uppbyggingu blak.is en þessi stuðningur gerir áframhaldandi rekstur og uppbyggingu blak.is auðveldari.

Þrótt Reykjavík vantar konur

Öldungalið kvenna hjá Þrótti Reykjavík vantar liðsstyrk næsta vetur. Ef þú ert að flytja í bæinn eða langar að skipta um lið ert þú hjartanlega velkomin.

Unglingamót á blak.is!

Um helgina fer fram Íslandsmót BLÍ í yngri flokkum á Akureyri í umsjón KA. 

Breytt dagsetning Skírdagsmóts

Athugið að dagsetningu Skírdagsmótsins hefur verið breytt.  Verður 21. apríl 2002 en ekki á Skírdag!

Dímonarmótið 26. janúar 2002.

Við minnum alla blakara á að Dímonarmótið verður á Hvolsvelli næsta laugardag, 26. janúar.

Breytt staðsetning Áramóts 2001

Áramót 2001 verður haldið í húsi Aftureldingar að Varmá í Mosfellsbæ.

Fitubrennslumót

Bresamótið 2002

HK velur blak.is

Umræðukerfi tekið í notkun

Haustmót KA

MOSÖLD 2002

Brosmót Aftureldingar, sunnudaginn 25.nóv.

NATO

Fréttavefur opnaður