Kjörísmótið er síðasti sjens að spila liðið saman fyrir öldung!

Búið að opna fyrir skráningu á Kjörísmót og eins og í fyrra, fyrstur kemur fyrstur fær. Við verðum hjá vinum okkur í Þorlákshöfn og hugsanlega ein deild í fína gamla húsinu okkar í Hveragerði.

Skráningu verður lokað þegar mótið er fullt (takmarkað pláss) eða kl. 22:00 þann 24. apríl. Skráning ekki tekin gild fyrr en mótsgjald er greitt kr. 16.000,- inn á 0314-13-146843, knt. 511194-2299.

Þetta er hraðmót, að sjálfsögðu, upp í 21, má muna einu og ekkert leikhlé, ekkert rövl og engin leiðindi. Engir verðlaunapjeningar, bara ís og blóm. Liðin skaffa umsjón og dómara.

Hlökkum til að sjá ykkur
Kjörísmótsfréttakonan

Nýjustu mótsfréttir

Mótstjórar gerðu mistök

Ótrúlegt en satt

Endurröðun í gangi - stay tuned

Uppröðun lokið

Mótið tilbúið til skoðunar?

Uppsetning móts í gangi

Skráið forsvarsmenn liðanna?