Loksins aftur Kjörísmót

Kjörísmótið verður að þessu sinni í smærri kantinum, út af dotlu, ekki semsagt Covid. Að þessu sinni fengum við innskot í íþróttahöll Ölfusinga í Þorlákshöfn en þar eru þrír vellir.

Kjörísmótin eru hraðmót, 2 hrinur, upp í 21, má muna einu og það er ekkert leikhlé. Liðin geta átt von á spila leik eftir leik og við stefnum alltaf á að hvert lið klári sína leiki eins fljótt og hægt er. Ekkert pjátur í verðlaun, kannski ís, kannski blóm en liðin hafa spilað sig saman fyrir langþráð öldungamót.

Við lokum mótinu þegar það eru komin nógu mörg lið, förum væntanlega ekki yfir 25.

Meira síðar

Kjörísmótsfréttaaðilinn


Nýjustu mótsfréttir