PIPARKÖKU-FJALLALAMBS-AÐVENTUGLEÐIMÓT FYLKIS
Tínið fram Jólasveinahúfurnar annan laugardag í Aðventu, 8.desember. Daginn þann verður hið árlega tímamót okkar Fylkis haldið með pompi og prakt, tónlist og jólagleði í boði hússins. Hlökkum til að sjá ykkur. Dragið ekki að skrá liðið ykkar því það gæti farið svo að við settum þak á fjölda liða til að friða stuðningsmennina/konurnar sem heima sitja og bíða.
Þátttökugjald er 10.000 á lið og að venju fæst fullt fyrir peninginn.
Hlökkum til að sjá ykkur.