Dímonarmótið 26. janúar 2002.
Við minnum alla blakara á að Dímonarmótið verður á Hvolsvelli næsta laugardag, 26. janúar. Keppni hefst á laugardagsmorguninn kl. 8 eða 9. Fer eftir fjölda þátttökuliða. Þátttökugjald er kr. 7.500 eins og á öðrum mótum í vetur.
Þátttaka tilkynnist til Halldóru Magnúsdóttur, halldmag@ismennt.is, fyrir 23. janúar. Dagskrá mótsins verður send í tölvupósti fimmtudaginn 24. janúar til þeirra sem tilkynna þátttöku.
Þátttökuliðum er bent á að sundlaugin er opin svo að keppendur geta farið í heita pottinn og sundlaugina að lokinni keppni.
Með kveðju,
Félagar í blakdeild Dímonar