Opið fyrir skráningu

Við bjóðum ykkur velkomin á mótið og vonum að við sjáum sem flesta. Mótið er opið öllum liðum. Spilað verður á laugardegi.

Þátttökugjald er kr. 13.000 á lið,
Reikningsnúmer : 0515-14-411495
Kennitala : 6110942649
Skýring: Nafn liðs eða nöfn liða.
Greiðsla staðfestir skráningu en hvoru tveggja þarf að vera lokið fyrir miðnætti þriðjudaginn 3. apríl.

Vinsamlegast greiðið mótsgjöldin í tíma og sendið kvittun á 80shulda@gmail.com
Það auðveldar mikið uppsetningu mótsins því skráningin er ekki gild fyrr en mótsgjaldið er greitt.
Einnig má reyna að senda séróskir á sama netfang.

Mótið fer fram með hefðbundnu hraðmótsniði og við hlökkum til að sjá ykkur öll í Fylkishöll.
Við óskum eftir að lið leggi til dómara, stigavörð og ritara þegar þau eiga umsjón.
Ekki þarf viðurkennda deildardómara en þeir eru að sjálfsögðu velkomnir ;-) Leggjum áherslu á að dæma stigin,yfirstig,net og mokstur. Ef einhverjir geta ekki með nokkru móti mannað dómgæslu vinsamlegast tilkynnið það fyrirfram til mótsstjóra. Fylkir verður með dómara á staðnum fyrir þá leiki sem lið hafa ekki dómara í.