Opnar æfingabúðir á Hvolsvelli
Helgina 23. og 24. september stendur blakdeild Dímonar fyrir opnum æfingabúðum fyrir blakara í Íþróttamiðstöðinni á Hvolsvelli. Blakdeildin hefur fengið til liðs við sig landsþekkta blakara þau Emil Gunnarsson og Laufeyju Björk Sigmundsdóttur til þess að skipuleggja æfingabúðirnar og stjórna æfingum alla helgina.
Æfingabúðirnar hefjast klukkan 10:00 laugardaginn 23. sept og standa æfingar með hléum til klukkan 18:30. Á sunnudeginum hefjum við svo leikinn aftur kl. 10:00 að morgni æfum til hádegis og sláum svo upp móti í lokin.
Gjald fyrir alla helgina er kr. 4000.- Innifalið í gjaldinu er þjálfunin, keppnin, sundferðir, léttur hádegisverður báða dagana og að sjálfsögðu kaffi eins og hver vill. Hægt er að taka þátt annan daginn og kostar það kr. 3000.- Hámarksfjöldi þátttakenda báða dagana er 40 manns.
Æfingabúðirnar eru opnar fyrir alla þá sem stunda blak, konur og karla og hafa áhuga á að auka færni sína í íþróttinni. Aldurstakmark 16 ár. Markmiðið er að eiga saman skemmtilega helgi þar sem hver og einn mætir á sínum forsendum. Þjálfarar munu sjá til þess að allir fái æfingar við sitt hæfi.
Nánari upplýsingar og skráning hjá Halldóru í síma 487-8384, 868-6895 eða halldmag@ismennt.is og hjá Maríu Rósu síma – 487-8694, 865-3694 eða mariarosa@simnet.is
Síðasti skráningardagur miðvikudagur 20. september kl.24:00.
Þetta er í annað skiptið sem við stöndum fyrir svona æfingabúðum, fyrir tveimur árum var mjög góð þátttaka og hafa borist margar fyrirspurnir um að endurtaka leikinn.
Látið ekki frábært tækifæri fram hjá ykkur fara. Sjáumst hress á Hvolsvelli.
Með blakkveðjum
Blakdeild Dímonar.