BLAKMÓT LAUGARDAG 29. DESEMBER
Við ætlum að hittast hress og kát á milli jóla og
nýárs því þá heldur Blakdeild KA blakmót þ.e. laugardaginn 29.desember
n.k. Mótið verður ekki með hefðbundnu
sniði heldur paramót þar sem hver leikur er í 20 mínútur án hlés. Mótið byrjar
klukkan 9 og því lýkur klukkan 15. Stigaskor hvers pars verður talið saman og
það par sem nær hæstu heildarskori uppsker sigur.
Hvert par getur verið karl og kona eða 2 konur og
er gjaldið 2 þúsund krónur á mann.
Í lok móts, á meðan útreikningar fara fram,
verður kynning á krakkablaki og hvetjum við ykkur því til að taka börnin með nú eða barnabörnin :)
Allur ágóði af mótinu rennur til blakdeildarinnar
en stór hluti af þeim sem skipa liðin í meistaraflokkunum eru krakkar sem fóru
með U17 og U19 landsliðunum í utanlandsferðir nú í haust þar sem þau sjálf
báru megnið af kostnaði.
Það verður engin vinna lögð á ykkur þar sem að
liðsmenn út meistaraflokkum KA sjá um dómgæslu og umsjón á mótinu.
Vinsamlegast sendið skráningu á netfangið
harpaae@mi.is fyrir 22. desember.