Tíðindi af Landeyjahöfn
Það hefur eflaust ekki farið fram hjá einhverjum að veruleg seinkun hefur orðið á að Landeyjahöfn opni. Upphaflega stóð til að hún væri tilbúin 1. apríl, en nú er stefnt að opnun 1. maí.
Forráðamenn mótsins hafa verið í nánu sambandi við rekstraraðila Herjólfs, Eimskip. Það er mat Eimskips að líkur séu meiri en minni á að Landeyjahöfn verði komin í gagnið þegar mótið fer fram. Ef hinsvegar verði seinkun á því, þá er möguleiki á að mótafyrirkomulagið riðlist eitthvað. Það mun skýrast þegar nær dregur og allar frekari fréttir verða sagðar af þróun mála á heimasíðunni.

20.4.2011 | Til baka <<