Sælir blakarar nær og fjær.

Skráning fyrir haustmót KA er hafin og lýkur henni miðvikudaginn 17. nóvember á miðnætti.

Spilaðar verða tvær unnar hrinur upp í 21. Oddahrina er upp í 15. Tvö stig verða að skilja til að vinna hrinu.

Á mótinu verður einn styrkleikaflokkur karla og tveir styrkleikaflokkar kvenna. Ræðst það þó af fjölda liða.

Auðveldast er að skrá lið sitt hér á blak.is en einnig má senda tölvupóst á einar@ma.is og þá muni liðið verða skráð af mótsstjóra. Öll kvennalið þurfa að senda póst með óskum um styrkleikaflokk.

Þátttökugjald fyrir eitt lið er 9000 kr, fyrir tvö lið 16000 kr og fyrir þrjú lið 21000 kr. Skal það lagt inn á reikninginn hjá Hannesi gjaldkera. Reikningsnúmerið er 302-26-10091, kt. 010762-5379 (Hannes Garðarsson).

Allar nánari upplýsingar veitir Einar Sigtryggsson í síma 699-2306.

Fyrirspurnir má einnig senda á einar@ma.is.

 

Nýjustu mótsfréttir