Laugardaginn 21. ágúst heldur Blakdeild KA strandblakmót við KA heimilið á Akureyri. Mótið verður haldið á nýjum blakvelli KA manna sem unnið hefur verið hörðum höndum við að fullklára nú síðustu dagana.  Settur var í völlinn fyrsta flokks hvítur skeljasandur og er völlurinn hinn prýðilegasti. 

Fjölmörg fyrirtæki styrktu byggingu vallarins og er þar Eimskipafélag Íslands efst á blaði. Einnig styrktu Akureyrarbær, B.M Vallá, Endurvinnslan, Húsasmiðjan og Finnur Aðalbjörnsson byggingu vallarins.

Nýjustu mótsfréttir