Skráning að hefjast á Nettómót KA !

Því miður þurfum við að hafa fjöldatakmörkun á mótið þar sem ekki verður hægt að spila í nema einu húsi.


Við stóðum frammi fyrir því að hafa 30 liða mót og neita mjög mörgum liðum um þáttöku en ákvörðun var tekin að hafa 40 liða mót en spila 4 hörku leiki per lið. Þau lið sem hafa forgang á mótið eru þau lið sem hafa mætt undanfarin ár.
Ef mótið fyllist ekki með þessum liðum verður hægt að bæta við öðrum liðum. Okkur þykir miður að þurfa að hafa þetta fyrirkomulag í ár en hjá því verður ekki komist.

En það gleðilega er að við erum búnir að tryggja okkur fleiri hús árið 2017 og 2018.



Kveðja, 
Mótsstjórn

Nýjustu mótsfréttir