Blakdeild Aftureldingar mun sjá um Haustmót BLÍ 2016 og býður alla blakara velkomna á mótið.  
Leikið verður í íþróttahúsinu að Varmá og hefst mótið kl 8:30. Leikið verður í eins mörgum deildum og þurfa þykir og bæði laugardag og sunnudag ef þess gerist þörf. Hvert lið spilar þó einungis annan daginn. 
Úrvalsdeildarlið karla og kvenna munu spila í 1.deild. Spilaðar verða 2 unnar hrinur.
Vinsamlegast takið fram óskadeild við skráningu en henni lýkur á miðnætti þriðjudaginn 13.september.
Hjá úrvalsdeildum og í öllum karladeildum verður spilað upp í 25 og þurfa 2 stig að skilja á milli  og oddur spilaður í 15 og sömu reglur þar..
Í neðri deildum veður spilað upp í 21 og má 1 stig skilja á milli. 
Mótagjald:: 15.000 kr greiðist á reikning blakdeildar Aftureldingar 
549-14-402121 og kt: 460974-0119 og vinsamlegast sendið kvittun með nafni liðs á netfangið:  blakdeildaftureldingar@gmail.com
Hlökkum til að sjá ykkur að Varmá við upphaf keppnistímabilsins 2016-2017 og óskum öllum gleðilegs blaksvertíðar.

Nýjustu mótsfréttir