Velkomin á Þorramót Aftureldingar sem haldið verður að Varmá í Mosfellbæ laugardaginn 13.febrúar n.k.  Spilað verður eftir hefðbundnum trimmóts reglum og verður spilað í eins mörgum deildum og þurfa þykir bæði í karla og kvennaflokki.  Veitt verða verðlaun fyrir fyrsta sæti í hverri deild.  Hægt er að óska eftir deildarröðun í skráningunni en þátttökugjald er kr 12.000 fyrir hvert skráð lið.  Vinsamlegast leggið inn á eftirfarandi reikning:  kt 4609740119, 0549-14-402104.  Greiðlsukvittun óskast send á thorramotaftureldingar@gmail.com og gildir sú regla að fyrstir koma fyrstir fá komi til þess að aðsókn verði það mikil að til fjöldatakmarkana komi.  Vinsamlegast athugið að lokað verður fyrir skráningu miðvikudaginn 10.febrúar kl 17:00 og á skal greiðslu mótsgjalda vera lokið  Allar nánari upplýsingar eru veittar á netfanginu thorramotaftureldingar@gmail.com.  Hlökkum til að sjá ykkur í Mosfellsbænum.

Nýjustu mótsfréttir