Blakdeid Aftureldingar býður alla velkomna á hið árlega Þorramót deildarinnar. Spilað verður á 6 völlum að Varmá frá kl 8:30-16:30. Vonumst við til að sjá sem flest lið á mótinu og bjóðum við sérstaklega unglingalið og nýliða velkomin því ekkert kemur í staðinn fyrir leikreynslu. Spilað verður í eins mörgum deildum og skráning krefur svo allir ættu að fá leiki miðað við sína getu.
Hlökkum til að taka á móti ykkur að Varmá laugardaginn 14.febrúar.
Mótsstjóri er Gunna Stína með netfangið: gunnastina@gmail.com

Nýjustu mótsfréttir