Kæru blaköldungar, -öðlingar og -ljúflingar Íslands

Fyrir hönd bæjarfélaganna (Dalvíkur- og Fjallabyggðar) og blakklúbbanna á Tröllaskaga (Hyrnunnar, Súlunnar og Rimanna) boða ég til 37.Öldungamóts Blaksambands Íslands sem haldið verður á Tröllaskaga (Siglufirði, Ólafsfirði og Dalvík) dagana 28.-30.apríl 2012. Spilað verður á 9 völlum: 3 völlum í íþróttamiðstöð hvers bæjarkjarna þar sem sundlaug og þreksalur er í sömu byggingu.

Mótið hefur hlotið nafnið Trölli 2012 og heimasíða mótsins er: www.trolli2012.is

Blaköldungur er með netfangið: oldungur@blak.is

Reglur varðandi Öldungamót BLÍ er að finna á heimasíðu blaksambandsins (www.bli.is)

Skráning á mótið verður á www.blak.isog er hún opin núna en henni mun ljúka 28.mars 2012.

Með kærri blakkveðju,

Óskar Þórðarson

Öldungur 2012

Nýjustu mótsfréttir