Breytt staðsetning Áramóts 2001

Áramót 2001 verður haldið í húsi Aftureldingar að Varmá í Mosfellsbæ.

Kæru blakendur.

Ég vil byrja á að óska ykkur gleðilegra jóla. 

Því miður ráðum við ekki við að halda Áramótið okkar í Kópavoginum, eins og verið hefur, vegna mikillar þáttöku þurfum við að breyta um keppnisstað og hafa okkur borist boð um að fá afnot af húsi Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Ég vona að allir sjái sér fært að mæta í Mosfellsbæinn og að þetta komi ekki að sök.

Mótið hefst kl. 10 og lýkur væntanlega kl. 13.30

Með blakkveðju,
Harald