Fyrstu mótin komin á skrá

Búnaðarbankamót Snæfells og Haustmót KA - takið strax frá þessa daga!

Nú er um að gera að taka upp dagbókina og merkja vandlega við eftirfarandi dag- og staðsetningar:

8. nóvember - Stykkishólmur

28. - 29. nóvember - Akureyri

Búnaðarbankamótið verður haldið með hefðbundnu sniði

KA menn ætla að draga mótsgesti með sér að loknum fyrsta hlutanum, þ.e. á föstudagskvöldið, í miðnæturkvöldverð með tónlist, dansi og miklu fjöri.

Hvetjum við sem flesta að telja saman í lið og skrá á þessi mót.