Blakmót á Hvolsvelli

Hið árlega Dímonarmót fyrir öldunga í blaki verður í íþróttamiðstöðinni Hvolsvelli laugardaginn 25.janúar 2003. Keppt verður bæði í karla- og kvennaflokkum.

Skráning á blak.is eða hjá Halldóru Magnúsdóttur halldmag@ismennt.is í síðasta lagi mánudaginn 20. janúar 2003. 

Mótsgjald kr. 8.500.-

Við minnum á að sundlaugin verður opin og það verður frítt í laugina fyrir keppendur. Sjáumst hress á Hvolsvelli þann 25.


Með Blakkveðju! 
Stjórn Blakdeildar Dímonar.