Bresamót

Hraðmót Bresa laugardaginn 5.mars 2016. Skráning er hafin.

Blakdeild Bresa býður ykkur hjartanlega velkomin á hraðmót félagsins sem haldið er að þessu sinni til heiðurs Boggu skvísu, sem varð sjötug á síðasta ári.

Mótið verður haldið laugardaginn 5. mars að Jaðarsbökkum á Akranesi.

Skráningarfrestur er til miðvikudagsins 2. mars kl. 22. Verð fyrir hvert lið er 12.000 kr.
Mótsgjald leggist inn á reikning 0186-26-21 og kennitala er 621097-2459.
Um að gera að skella sér á Skagann og spila skemmtilegt blak.

Mótsstjóri er Erna Björg Guðlaugsdóttir

Endilega sendið inn óskir um deildir á netfangið erna@fva.is

Nýjustu mótsfréttir