Opnað fyrir skráningu.

Opnað hefur verið fyrir skráningu á Skautamót Blakdeildar KA 27-28/3 og er skráningin opin til og með föstudagsins 20. mars. Þátttökugjald er kr. 15.000,- pr liðs, sem leggist inn á reikning 0162-05-261008, kt. 501013-1100. Vinsamlegast sendið staðfestingu á skautamot@gmail.com og telst skráning ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Við áskiljum okkur rétt til að loka skráningu fyrir auglýstan dag ef mótið fyllist og komi til þess að takmarka þurfi fjölda liða munum við horfa til þess hvort um Öldungalið sé að ræða og hvort búið sé að greiða mótsgjald.
Hlökkum til að sjá ykkur.