BLAKA 2018 - hvar eru vellirnir?

Þá ættu allir að vera skráðir á blak.is í sínu liði, skráðir blakiðkendur í félagi innan ÍSÍ og búnir að standa skil á iðkendagjöldum til BLÍ.Spennan magnast og áður en við vitum erum við komin á BLAKA 2018. 
Búið er að raða leikjunum í húsin þrjú sem við komum til með að spila í.
KA-HEIMILIÐ er með þrjá velli, þeir eru: ÞEKKING, ENOR og STELLA.
Íþr.hús SÍÐUSKÓLA er með vellina: BAUTINN, FASTUS og SAMSKIP.
Í BOGANUM eru níu vellir: BENECTA, FROST, STEFNA, ÍSLANDSBANKI, ÖLVISHOLT, ARION BANKI, GRÆNEGG, ISAVIA OG MIZUNO.