DÓMARAEFNI - Styrkjum ungmenni

Nú fækkar dögunum sem eru til stefnu og þurfa allir að skrá leikmenn fyrir 18. apríl og þá er gott að skrá dómaraefni í leiðinni. Núna þegar styttist í mót þurfa ÖLL lið að skrá inn leikmenn og hvetjum við alla sem treysta sér í dómgæslu að skrá sig líka sem dómaraefni.
Einhverjir eru að lenda í vandræðum með að finna út úr þessu en leiðin er svona eftir að þú ert búinn að velja BlaKA 2018 á blak.is:
Skráning – finna lið – velja viðkomandi lið – liðsmenn – uppfletting liðsmann og nýskráning -bæta við sem DÓMARAEFNI
Með bestu kveðju og von um góð viðbrögð
Dómaranefnd BlaKA 2018