Öldungamót 2019 og 2020 - umsóknir

KEFLAVÍK - KÓPAVOGUR - VESTMANNAEYJAR ???Umsóknir frá þremur aðilum bárust í næstu tvö Öldungamót.
Keflavík og Þróttur Reykjavík sækja saman um að halda mótið í Keflavík 2019 og til vara 2020.
HK sækir um að halda mótið í Kópavogi 2019 og til vara 2020.
BF og ÍBV sækja saman um að halda mótið 2020 í Vestmannaeyjum.
Umsóknirnar eru á heimasíðu mótsins og eruð þið hvött til að kynna ykkur þær vel og vandlega.

http://www.bli.is/oldungamot

Atkvæðaseðlar koma til með að fylgja mótsgögnum sem þið fáið þegar þið komið á staðinn. Föstudagskvöldið verður t.d. hægt að nálgast þau í KA-heimilinu og fá sér safa eða öl í leiðinni.