Lokahóf að hætti blakara

Hófið fer fram á Rauðku laugardagskvöldið 24.febrúar. Húsið opnar kl 19:00 og borðhald hefst kl 20:30.Trúbadorastemmning og tilboð á barnum uns borðhald hefst og strax að því loknu mun ballið hefjast.
Lokahófsmatur: Kjúklingur, rótargrænmeti, kartöflugratín og sósa.
Ball: Danni og Stúlli.
Lokahófsverð: 4.500.- (matur og ball).
Einungis 180 miðar til sölu.
Athugið að lokahófið er einungis fyrir blakara.
Félög eru hvött til að panta sér miða sem fyrst á hófið (bf.blak@gmail.com).
Greiðsla og afhending miða verður svo á mótsstöðunum á föstudagskvöldinu og laugardagsmorgninum.