VÍS styrkir blak.is

VÍS hefur enn einu sinni sýnt velvilja sinn í verki og styrkir blak.is.

VÍS styrkir blak.is nú þriðja árið í röð. 

Það er afskaplega mikilvægt fyrir blak.is að VÍS stuðli á þennan hátt að því að hægt sé að halda blak.is vefnum gangandi.  Nú er svo komið að nánast öll blakmót sem haldin eru á Íslandi eru sett upp í mótakerfi blak.is og flestar upplýsingar um mótin er að finna hér.  blak.is gegnir því orðið stóru hlutverki á þessu sviði.

Það er því mjög mikilvægt að hægt sé að halda þessu kerfi gangandi áfram og þróa það frekar en slíkt krefst mikillar vinnu.

VÍS hjálpar okkur í þessari vinnu!